Sebastian ráðinn þjálfari kvennaliðs Aftureldingar

Sebastian Alexanderson hefur verið ráðinn nýr þjálfari meistaraflokks kvenna hjá Aftureldingu. Gerir hann 3 ára samning við félagið.

Sebastian hefur gríðarlega mikla reynslu sem þjálfari en hann hefur þjálfað hjá Selfossi, Stjörnunni, Þrótti, Fram, HK og nú síðast kvennalið Víkings.

Sebastian spilaði með meistaraflokk Aftureldingar á árunum 1995-1998 og þekkir því vel til í Mosfellsbæ.

"Stjórn handknattleiksdeildar er gífurlega stolt af þessari ráðningu og glöð með að Sebastian hafi viljað taka þátt í þeirri uppbyggingu og vegferð sem er framundan í kvennaboltanum í Mosfellsbæ. Þessi ráðning er gerð í samráði við Hauka en tilkynnt var í síðustu viku að hann myndi sjá um afreks þjálfun þar" segir í tilkynningu frá Aftureldingu.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top