Kvennalið Vals fær annað tækifæri til að tryggja sér Íslandsmeistaratitilinn í kvöld þegar liðið heimsækir ÍBV í fjórða leik liðanna í úrslitaeinvígi Íslandsmótsins. Leikurinn hefst klukkan 18:00 og verður sýndur í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans. ÍBV mætti á Hlíðarenda um helgina og vann sannfærandi átta marka sigur 35-27 og minnkaði því muninn í einvíginu í 2-1. Anton Rúnarsson þjálfari Vals segir að það sé alltaf eitthvað sem þarf að gera betur og fara yfir eftir hvern leik. ,,Það eru alltaf einhver atriði sem hægt er að gera betur og höfum við farið vel yfir það á síðustu dögum. Varnarlega vorum við ólíkar sjálfum okkur og munaði það um minna í svona leik. Einnig sóknarlega en að sama skapi vorum við að fá færi sem við hefðum getað nýtt betur," sagði Anton Rúnarsson í samtali við Handkastið. ,,Það hafa verið sveiflur í öllum leikjunum hingað til og á þessum kafla í seinni hálfleik misstum við nánast alla þætti leiksins á sama tíma. Við þurfum því að vera klárar í hörkuleik í dag," sagði Anton sem gerir ráð fyrir að ÍBV verði áfram í sinni 6-0 og 5-1 varnarleik í leiknum í dag en Valsstelpur fundu fáar lausnir á varnarleik ÍBV í síðasta leik þar sem ÍBV lokaði á nánast allar aðgerðir Lovísu Thompson sem komst ekki á blað í leiknum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.