Hlakkar til að vera hluti af HH Elite
Egill Bjarni Friðjónsson

Línumaður íslenska landsliðsins og leikmaður ÍR, Katrín Tinna Jensdóttir var í vikunni kynnt sem nýr leikmaður HH Elite í Danmörku.

HH Elite, sem er staðsett í Horsens endaði í 7.sæti dönsku úrvalsdeildarinnar á tímabilinu en liðið endaði með 0 stig í riðlakeppni 8-liða úrslitanna í kjölfarið.

Þetta er ekki í fyrsta skipti sem Katrín Tinna mun leika erlendis en hún hefur á ferli sínum bæði leikið í Noregi og Svíþjóð.

,,Ég hlakka virkilega til að vera hluti af HH Elite á næsta tímabil. Ég hef fengið mjög góðar tilfinningar fyrir félaginu, sem gerði ákvörðun mína auðvelda. Ég tel að HH Elite sé góður staður fyrir mig til að þroskast sem leikmaður og ég hlakka til að klæðast gulu treyjunni," sagði Katrín Tinna þegar hún var kynnt sem nýr leikmaður félagsins.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top