
Leikstjórnandinn, Bryndís Hulda Ómarsdóttir hefur framlengt samningi sínum við Stjörnuna. Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum í gær. Bryndís Hulda sem er fædd árið 2008 gerir þriggja ára samning við Stjörnuna eða til ársins 2029. ,,Það er okkur mikið gleðiefni að tilkynna að Bryndís Hulda Ómarsdóttir hefur framlengt samning sinn við Stjörnuna til næstu þriggja ára. Bryndís er uppalin hjá félaginu og hefur tekið stór skref með liðinu undanfarin tímabil. Hlutverk hennar hefur vaxið jafnt og þétt og á nýliðnu tímabili var hún valin efnilegasti leikmaður Stjörnunnar viðurkenning sem endurspeglar metnað hennar, vinnusemi og framfarir," segir í tilkynningunni frá Stjörnunni. ,,Við bindum miklar vonir við Bryndísi á komandi árum og hlökkum til að sjá hana áfram skína í bláu treyjunni," segir ennfremur. Bryndís Hulda lék 19 leiki með Stjörnunni í Olís-deildinni í vetur og skoraði fimm mörk og þá skoraði hún einnig fimm mörk fyrir Stjörnuna í umspilinu um laust sæti í Olís-deildinni en liðið sló þar út bæði FH og Gróttu. Bryndís Hulda var á dögunum valin í U18 ára landslið Íslands fyrir verkefni sumarsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.