Hrafnhildur á leið í Hauka
Eyjólfur Garðarsson

Markvörðurinn, Hrafnhildur Anna Þorleifsdóttir yfirgefur Stjörnuna og gengur í raðir Hauka samkvæmt heimildum Handkastsins.

Hrafnhildur Anna lék tvö tímabil með Stjörnunni en hún gekk í raðir félagsins sumarið 2024 frá Íslandsmeisturum Vals. Þar áður lék hún með uppeldisfélagi sínu FH.

Þar með er ljóst að FH-ingurinn, gengur í raðir nágranna sína í Hauka í sumar og myndar þar markvarðarteymi með landsliðsmarkverðinum, Söru Sif Helgadóttur.

Hrafnhildur Anna var valin besti leikmaður Stjörnunnar á lokahófi þess eftir síðasta tímabil en hún myndaði markvarðarpar Stjörnunnar í vetur með Margréti Einarsdóttur.

Hrafnhildur var með 27,% markvörslu hjá Stjörnunni í vetur og varði alls 126 skot.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top