Þetta eru allt kjúllar sem hafa tekið ótrúlegum framförum og mikla ábyrgð
Egill Bjarni Friðjónsson

Lovísa Thompson var valin mikilvægasti leikmaður úrslitakeppninnar eftir að hún varð Íslandsmeistari í kvöld eftir sigur Vals gegn ÍBV í Vestmannaeyjum.

Valur vann úrslitaeinvígið 3-1 en leikinn í kvöld unnu þær með fjórum mörkum 26-30. Lovísa skoraði sex mörk í leiknum í kvöld eftir að hafa ekki komist á blað í síðasta leik sem tapaðist í Valsheimilinu.

,,Þetta var frábært. Um leið og við töpuðum síðasta leik þá hlakkaði mér að koma hingað. Það er ótrúlega gaman að spila hérna og við sýndum hrikalega frammistöðu í síðasta leik, en ekki það að ÍBV er með ógeðslega gott lið og þetta eru tvö jöfn lið. Við bjuggumst alveg við því að þær myndu koma á milljón því þær ætluðu ekki í sumarfrí þannig mér fannst leiðinlegt hvernig við mættum í þann leik. En ég er mjög ánægð að við mættum grimmar til leiks í dag," sagði Lovísa í viðtali við Ingvar Örn Ákason í opinni dagskrá í Sjónvarpi Símans eftir sigurinn í kvöld sem var síðan spurð að því hvernig væri að fagna Íslandsmeistaratitlinum í Eyjum.

,,Það hefði verið gaman að prufa að fara í oddaleik en ég er á sama tíma mjög fegin að þetta sé búið."

,,Þetta er búið að vera ótrúlega langur og strangur vetur. Ef þú hefðir sagt við mig í byrjun tímabils að við myndum standi uppi með alla titlana, ég veit ekki hvað ég hefði sagt. Við höfum lent í þvílíkum áföllum og Valur hefur verið það lið sem er alltaf stabílt ár eftir ár og með geggjaða leikmenn. Í dag erum við með Laufeyju og Örnu sem bera þungann á sóknarleiknum, þetta eru allt kjúllar sem hafa tekið ótrúlegum framförum og mikla ábyrgð. Ég er svo fegin því þær eiga þetta svo sannarlega skilið. Þetta er framtíðin og það er ótrúlega gaman að vera með þeim hér í dag og hjálpa þeim líka," sagði Lovísa að lokum.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top