

Sandra Erlingsdóttir leikmaður ÍBV og einn besti leikmaður Olís-deildarinnar í vetur var að vonum svekkt og sagðist líða hörmulega eftir tap gegn Val á heimavelli í gærkvöldi sem tryggði Val fjórða Íslandsmeistaratitilinn í röð. Sandra kom heim til Eyja fyrir tímabilið og styrkti liðið gríðarlega en ÍBV endaði í 2.sæti bæði í deild og í úrslitakeppninni. ,,Auðvitað verður maður stoltur af vetrinum og við höfum átt frábæran vetur en í dag, ég veit að við áttum roð í Val og þetta datt ekki með okkur í dag. Mér fannst koma ákveðin þreytumerki í okkur í lok seinni hálfleiks og við byrjuðum seinni hálfleikinn mjög illa og þá var erfitt að elta Val í lokin," sagði Sandra í viðtali hjá Sjónvarpi Símans eftir leik. ,,Við töluðum um það að þetta er alls ekki á hverjum degi sem maður spilar fyrir framan svona marga og maður reyndi að njóta þess eins mikið og maður gat. Þetta er alveg einstakt. Við höfum stundum verið að spila í vetur og það eru kannski 15 manns á leiknum, svo þetta er aðeins öðruvísi. Við erum ótrúlega þakklátar stuðninginn sem við fengum.” ,,Maður hefur heyrt það útundan sér að þetta tímabil hafi verið bónus fyrir ÍBV og síðan er það næsta tímabil. En maður sá það á þessu tímabili að við erum kannski það góðar til að ná þessu núna og þess vegna er maður ógeðslega svekktur núna en við tökum okkur nokkra daga í frí og síðan er bara áfram gakk," sagði Sandra að lokum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.