
Það er ljóst eftir 69. ársþing HSÍ sem fram fór í síðustu viku að leikið verður í 10 liða Olís-deild kvenna á næstu leiktíð. Þar með verður liðum í Olís-deild kvenna fjölgað um tvö lið en leikin hefur verið átta liða Olís-deild kvenna undanfarin ár. Rætt var um fjölgunina í Handboltahöllinni í Sjónvarpi Símans í vikunni þar sem Hörður Magnússon spurði Rakel Dögg Bragadóttur fyrrum landsliðsmann og núverandi yngri landsliðsþjálfara út í hennar skoðun á fjölguninni. ,,Ég er virkilega ánægð með þessa breytingu. Ég var að vonast til að þessi tillaga færi í gegn og mér finnst það mjög jákvætt að fjölga í deild þeirra bestu og fá fleiri lið inn í það umhverfi þar sem eru meiri kröfur, bæði á umgjörð og á leikmennina og liðin. Við höfum líka séð það að það hafa verið hörkurimmur í þessum umspilsleikjum og það hafa Grill66-deildarlið slegið út Olís-deildarlið í bikarkeppninni. Við erum alveg með lið sem munu sóma sig vel í Olís-deildinni og ég tel þetta mjög jákvætt að við séum að fjölga liðum.” Frekari umræðu um málið má sjá hér að neðan.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.