Hafdís segir úrslitaeinvígið hafa brotið sig
Egill Bjarni Friðjónsson

Hafdís Renötudóttir landsliðsmarkvörður og markvörður Vals sem varð Íslandsmeistari á dögunum með Val eftir sigur á ÍBV í úrslitaeinvíginu tjáir sig á Instagram síðu sinni í dag og segir að úrslitaeinvígið hafi brotið sig.

,,Hinsegin fólk verður fyrir aðkasti á hverjum degi og ég er hvorki sú fyrsta né síðasta sem upplifir það.
Þetta úrslitaeinvígi braut mig. Ég mætti samt,"
skrifar Hafdís undir Instagram færslu sinni.

FORDÓMAFULL UMMÆLI STUÐNINGSMANNA ÍBV Í GARÐ HAFDÍSAR

Alvarlegt atvik átti sér stað í öðrum leik ÍBV og Vals sem fór fram í Vestmannaeyjum þegar stuðningsmenn ÍBV létu niðrandi köll dynja á Hafdísi.

Atvikið sem um ræðir átti sér stað á 32. mínútu leiksins þegar heyra mátti stuðningsmenn ÍBV hrópa: „Hafdís fílar skæri“, sem vísar til kynlífs tveggja kvenna. Landsliðsmarkvörðurinn og leikmaður Vals, Hafdís Renötudóttir er samkynhneigð. Ummælin vöktu mikla reiði meðal leikmanna og aðstandenda Vals en þau eru talin bæði niðrandi, ósmekkleg og skýr dæmi um fordóma í garð samkynhneigðra.

Í kjölfarið sagði Sólveig Jónsdóttir framkvæmdastjóri HSÍ að sambandið liti málið alvarlegum augum. Í kjölfarið var ÍBV sektað um 150.000 kr. og ÍBV sendi frá sér yfirlýsingu þar sem málið væri litið alvarlegum augum og stuðningsmaðurinn hafi verið settur í tímabundið bann.

HSÍ LÍTUR MÁLIÐ Í EYJUM GRAFALVARLEGUM AUGUM

Í viðtali við Ingvar Örn Ákason og Hrafnhildi Skúladóttur í Sjónvarpi Símans eftir að Valur hafði tryggt sér Íslandsmeistaratitilinn opnaði Hafdís á málið en bæði Ingvar og Hrafnhildur fóru í kjölfarið að spyrja Hafdísi að því hvar og hvernig Valsliðið ætlaði að fagna Íslandsmeistaratitlinum.

,,Mér líður ótrúlega vel. Við stóðum okkur vel og þetta var virkilega erfitt einvígi. Ég er stolt af okkur í dag. Ég er svo stolt af því að vera hérna í dag, það er sigurinn númer eitt og sigurinn númer tvö er Íslandsmeistaratitilinn," sagði Hafdís í viðtalinu sem lauk stuttu síðar og fékk hún því ekki tækifæri til að ræða meira um hennar líðan eftir atvikið í Vestmannaeyjum.

Rætt var um viðtalið við Hafdísi í nýjasta þætti Handkastsins þar sem það var undrast yfir taktleysi þeirra Ingvars og Hrafnhildar í kjölfar ummæla Hafdísar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top