Ein efnilegasta handboltakona landsins, Laufey Helga Óskarsdóttir hefur framleng samningi sínum við uppeldisfélag sitt, Val. Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðla síðu sinni nú rétt í þessu. Laufey Helga sem er fædd árið 2009 lék stórt hlutverk í fjórða leik Vals og ÍBV í Vestmannaeyjum í vikunni þegar Valur vann fjórða Íslandsmeistaratitilinn í röð. Laufey Helga sem hefur verið í litlu hlutverki með kvennaliði Vals í Olís-deildinni í vetur fékk lyklana af sóknarleik Vals í leiknum og þakkaði traustið. Þá hefur hún einnig verið lykilmaður í 3.flokks liði Vals sem og liði Vals 2 í Grill66-deildinni í vetur en alls hefur Laufey spilað 77 leiki á tímabilinu og á eftir að spila sinn 78. leik þegar hún leikur til úrslita um Íslandsmeistaratitilinn í 3.flokki kvenna um helgina gegn HK. Hún varð næst markahæsti leikmaður Grill66-deildarinnar með 167 eða 8,4 mörk að meðaltali í leik. ,,Laufey Helga er öflugur leikmaður með góða leikskilning, mikinn metnað og jákvætt hugarfar sem mun styrkja hópinn okkar enn frekar. Laufey Helga hefur spilað upp alla yngri flokka Vals og staðið sig vel auk þess að hafa verið valin í yngri landsliði Íslands. Við erum afar ánægð með að Laufey Helga skrifi undir nýjan samning og hlökkum til að fylgjast með henni taka næstu skref í rauðu treyjunni," segir í tilkynningunni frá Val.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.