Sú sænska framlengir á Ásvöllum
Egill Bjarni Friðjónsson

Sara Odden hefur framlengt samningi sínum við Hauka og mun leika áfram með liðinu í Olís-deild kvenna. Þetta tilkynnir félagið á samfélagsmiðla síðu sinni í morgun.

Sara kom fyrst til Hauka sumarið 2019 og lék með liðinu þrjú tímabil. Hún fór þá til Þýskalands en sneri aftur til Hauka hálfu ári síðar eða í janúar 2023. Hún hefur leikið með Haukum síðan þá og varð bikarmeistari með Haukum á síðustu leiktíð.

,,Sara er klár í slagin áfram með liðinu en hún er frábær liðsmaður og mikil fyrirmynd sem gefur mikið af sér til yngri iðkenda félagsins. Það er því ánægjulegt að Sara framlengi samning sinn við félagið," segir í tilkynningunni frá Haukum.

Sara hefur verið í stóru varnarhlutverki í Haukaliðinu undanfarin ár en mínútur hennar í sókn hafa verið af skornum skammti. Haukar féllu úr leik í úrslitakeppninni eftir tap gegn ÍBV í oddaleik í undanúrslitum og þá tapaði liðið í bikarúrslitum eftir tap gegn Val.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top