Markahæsti leikmaður Grill66-deildarinnar, Katrín Helga Davíðsdóttir hefur framlengt samningi sínum við Aftureldingu til næstu tveggja ára. Gildir samningur hennar við Aftureldingu til ársins 2028. Þetta tilkynntir félagið á samfélagsmiðlum sínum. Katrín Helga er uppalin hjá Aftureldingu og hefur verið lykilmaður hjá liðinu undanfarin tímabil. Hún gerði sér lítið fyrir og skoraði 204 mörk í Grill66-deildinni eða 9,7 mörk að meðaltali í leik. Hún hefur alls leikið 171 leik fyrir Aftureldingu í meistaraflokki og skorað 693 mörk. ,,Það er gríðarlega ánægjulegt að hún hafi ákveðið að taka slaginn með okkur áfram og vilji taka þátt í þeirri vegferð sem er framundan. Við erum gífurlega stolt að því að Katrín hafi ákveðið að framlengja við uppeldisfélagið en það undirstrikar líka metnaðinn okkar fyrir komandi tímabil," segir í tilkynningunni frá Aftureldingu. Sebastian Alexandersson tók við liði Aftureldingar á dögunum og stýrir liðinu í Grill66-deildinni á næstu leiktíð.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.