Unglingalandsliðskona framlengir á Hlíðarenda
Valur

Vinstri hornamaður, Eva Steinsen Jónsdóttir hefur framlengt samningi sínum við Val. Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum í gær.

Eva varð á dögunum Íslandsmeistari bæði með Val í Olís-deild kvenna sem og 3.flokki félagsins. Eva er yngri systir Agnars Smára Jónssonar sem lagði á dögunum skónna á hilluna eftir farsælan feril.

,,Eva er spennandi leikmaður sem kemur með ferska orku, góðan karakter og skýran vilja til að bæta sig og hjálpa liðinu að ná árangri. Það verður gaman að sjá hana vaxa og dafna í umhverfinu á Hlíðarenda og taka þátt í þeim verkefnum sem framundan eru. Eva hefur verið stór hlekkur í sterku liði 3. flokks og U-liði ásamt því að æfa reglulega í vetur með meistaraflokknum í vetur og spilað þar nokkra leiki. Eva hefur æft upp alla yngri flokka Vals og verið valin í yngri landsliðs Íslands," segir í tilkynningunni frá Val.

Eva fékk fá tækifæri með Val í Olís-deildinni í vetur en var í stærra hlutverki með Val 2 í Grill66-deildinni og 3.flokki félagsins.

Eftir að Lilja Ágústsdóttir yfirgaf Val og gengur í raðir þýska liðsins Sachsen Zwickau gætu tækifæri Evu í liði Vals aukist á næstu leiktíð.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top