Efnilegur hornamaður framlengir við HK

Auður Guðmundsdóttir hefur samið til tveggja ára við HK.

Auður er ungur og efnilegur örvhentur hægri hornamaður sem er fædd árið 2009. Á liðnu tímabili var hún mikilvægur hlekkur í liði 3. flokks sem endaði í 2. sæti Íslandsmótsins.

"Auður hefur verið viðloðin meistaraflokk félagsins á liðnu tímabili og spilaði sína fyrstu meistaraflokksleiki í vetur. Auður hefur á undanförnum árum bætt sig mjög og bindur HK miklar vonir við hana á komandi árum" segir í tilkynningu frá HK.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top