Hefur verið markmið að verða meistaraflokks þjálfari
ÍR

Davíð Georgsson tók við kvennaliði ÍR á dögunum ásamt Björgvini Þór Hólmgeirssyni. Taka þeir við liðinu af Grétari Áka Andersen og Arnari Frey Guðmundssyni sem stýrðu liðinu á síðustu leiktíð en Grétari var óvænt sagt upp störfum eftir að hafa náð besta árangri kvennaliðs ÍR í efstu deild í sögunni.

Davíð og Björgvin léku á sínum tíma saman í meistaraflokki ÍR en báðir eru þeir uppaldnir hjá félaginu.

Handkastið heyrði í Davíð Georgssyni og spurði hann aðeins út í ráðninguna en hann hefur verið að þjálfa yngri flokka hjá ÍR undanfarin ár og verð meðal annars Íslandsmeistari með 4.flokk karla á dögunum.

Hvenær hafði ÍR fyrst samband? 

ÍR hafði fyrst samband fyrir sirka tveimur vikum. Ég átti góð samtöl við stjórnina og gekk þetta frekar hratt fyrir sig.

Kom það þér á óvart að vera boðið þetta? 

Já og nei. Það er alltaf ákveðin viðurkenning að fá svona tækifæri. Ég hef lagt mikið í þjálfun hjá yngri flokkum félagsins undanfarin ár og fannst mér vera tilbúinn að taka næsta skref.

Hefur verið löngun hjá þér að taka að þér meistaraflokksstarf áður? 

Já það hefur alveg verið markmið hjá mér en fyrst að láta verða að því núna. Maður vill þróa sig áfram sem þjálfara og er þetta spennandi tækifæri til þess.

 Hvernig líst þér á verkefnið? 

Mér líst mjög vel á verkefnið, þetta spennandi hópur sem ég er með og ég finn fyrir miklum metnaði hjá leikmönnum og öllum sem koma að starfinu. 

Hefur þú fylgst með kvennaliði ÍR undanfarin ár?

Já ég hef fylgst nokkuð vel með liðinu síðustu ár og það hefur verið mikill uppgangur. Það var margt jákvætt í spilamennskunni á síðasta tímabili og stóðu þær sig vel.

Má gera ráð fyrir að það bætist við einhverjir nýir leikmenn eða er hópurinn klár? 

Það er  alltaf gott að halda möguleikum opnum en á sama tíma erum við sáttir við kjarnann sem er fyrir og ætlumst við til mikils af þeim.

Hversu mikilvægt var að fá Björgvin Hólmgeirsson með þér í teymið? 

Það var bara mjög mikilvægt. Björgvin kemur með mikla reynslu og þekkingu inn í teymið og er ég mjög spenntur að vinna með honum.

Nú var fjölgað í úrvalsdeildinni úr átta liðum í tíu lið á síðasta ársþingi - hefur þú mótað þér einhverja skoðun varðandi þá ákvörðun?

Nei ég hef ekki myndað mér skoðun á því, fer smá eftir því hvort þetta verði tvöföld eða þreföld umferð.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top