
Landsliðsmaðurinn, Viggó Kristjánsson hefur spilað sinn síðasta leik á tímabilinu með HC Erlangen og verður því ekki með liðinu í þremur síðustu leikjum tímabilsins. Viggó er á leið til Íslands þar sem hann fer í aðgerð á hné hjá Örnólfi Valdimarssyni lækni íslenska landsliðsins. Þetta staðfesti hann í samtali við Handkastið á dögunum. Viggó hefur ekkert leikið með Erlangen frá því í mars en meiðsli hans í hné sem hann hefur verið að glíma við undanfarnar vikur eru alvarlegri en talið var í fyrstu og nú er ljóst að hann þarf að gangast undir speglun. Viggó gengur í raðir Flensburg sumarið 2027 en Erlangen er í mikilli fallbaráttu og mætir Wetzlar í botnbaráttuslag í þýsku Bundesligunni í dag klukkan 17:00. Erlangen er í 14.sæti deildarinnar með 19 stig, fjórum stigum meira en Wetzlar.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.