Einar Bragi fór á kostum – Sjáðu öll ellefu mörk hans
Kristianstad

Líkt og Handkastið greindi frá í gær þá fór landsliðsmaðurinn, Einar Bragi Aðalsteinsson á kostum í liði Kristianstad í gærkvöldi þegar liðið vann fimm marka sigur á Malmö 39-34 í fyrsta leik liðanna í úrslitaeinvíginu um sænska meistaratitilinn.

Einar Bragi gerði sér lítið fyrir og skoraði ellefu mörk úr fjórtán skotum í leiknum og gaf tvær stoðsendingar. Einar Bragi var besti maður Kristianstad ef marka má einkunnagjöf sænsku deildarinnar. Besti maður vallarins var þó leikmaður Malmö, Nikola Roganovic sem skoraði þrettán mörk úr nítján skotum.

Næsti leikur liðanna fer fram í Malmö, laugardaginn næstkomandi en vinna þarf þrjá leiki.

Hér að neðan má sjá myndskeið af öllum ellefu mörkum Einars Braga í leiknum í gærkvöldi.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top