Elmar Erlingsson og liðsfélagar hans í Nordhorn-Lingen unnu góðan tveggja marka sigur á heimavelli í gær gegn TV Huttenberg 35-33 í þýsku B-deildinni. Huttenberg voru tveimur mörkum yfir í hálfleik 20-18 en Elmar og félagar sneru blaðinu við í seinni hálfleik fengu aðeins þrettán mörk á sig og skoruðu 17 mörk og unnu að lokum tveggja marka sigur. Elmar skoraði tvö mörk í leiknum en Nordhorn er í 5.sæti deildarinnar eftir sigurinn með 42 stig þegar liðið á tvo leiki eftir af tímabilinu. Bietigheim og Balingen hafa nú þegar tryggt sér sæti í þýsku Bundesligunni á dögunum eftir tvö töp í röð hjá Elbflorenz sem er í 3.sæti deildarinnar og þar með var ljóst að Bietigheim og Balingen gætu ekki farið neðar en 2.sætið í deildinni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.