Líður einstaklega vel hjá ljónunum
Kadir Caliskan / Middle East Images via AFP

Landsliðsmaðurinn Haukur Þrastarson framlengdi samningi sínum við Rhein Neckar Löwen á dögunum en félagið tilkynnti frá framlengingunni á heimasíðu sinni í gær.

Haukur sem hefur farið á kostum á sínu fyrsta tímabili hjá félaginu er bæði markahæstur og stoðsendingar hæstur í liðinu en hann er meðal annars stoðsendingar hæsti leikmaður þýsku Bundesligunni þegar þrjár umferðir eru eftir.

„Mér líður einstaklega vel hér í liðinu, í félaginu og í öllu svæðinu. Viðræðurnar gengu mjög vel og ég er sannfærður um að við getum áorkað miklu saman hér. Þess vegna var ákvörðunin um að framlengja samning minn hér mjög auðveld fyrir mig," sagði Haukur Þrastarson leikmaður Rhein Neckar Löwen þegar tilkynnt var um framlengingu samnings hans við félagið á heimasíðu félagsins.

Haukur gekk í raðir Rhein Neckar Löwen síðasta sumar frá rúmenska félaginu Dinamo Bucuresti en þar áður lék hann með Kielce í Póllandi.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top