Óvíst með framhaldið hjá Andra Má
Erlangen

Andri Már Rúnarsson leikmaður HC Erlangen í þýsku úrvalsdeildinni hefur ekkert leikið með liðinu að undanförnu en liðið hefur óvænt sogast í fallbaráttu fyrir síðustu tvær umferðirnar í deildinni.

Andri Már hefur verið að glíma við nárameiðsli frá því í apríl og hefur því ekkert leikið með liðinu í maí mánuði. Hann sagði í samtali við Handkastið á dögunum að þetta væri allt að þróast í rétta átt en hvort hann gæti leikið með liðinu í lokaleikjunum væri ómögulegt að segja til um.

Erlangen hefur tapað fimm leikjum í röð og síðan gegn HSG Wetzlar sem fór uppúr fallsæti með sigrinum gegn Erlangen. Erlangen er fjórum stigum frá fallsæti en liðið mætir Bergischer í næstu umferð og Stuttgart í lokaumferðinni.

Það þyrfti allt að fara á versta veg svo Erlangen myndi sogast niður í fallsæti.

Handkastið greindi frá því um helgina að Viggó Kristjánsson hafi leikið sinn síðasta leik fyrir Erlangen á tímabilinu en hann þarf að gangast undir aðgerð vegna meiðsla.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top