
Arnar Daði Arnarsson og Hanna Guðrún Stefánsdóttir munu stýra kvennaliði Stjörnunnar í Olís-deild kvenna á næstu leiktíð. Þetta tilkynnir félagið á samfélagsmiðlum sínum. Arnar Daði kom inn í þjálfarateymi meistaraflokks kvenna á miðju síðasta tímabili eftir að Patreki Jóhannessyni hafi verið sagt upp störfum og stýrði hann liðinu ásamt Hönnu Guðrúnu. Nú er ljóst að þau ætla halda áfram með kvennalið Stjörnunnar. ,,Þjálfarateymi meistaraflokks kvenna hefur framlengt samninga sína fyrir næsta tímabil. Þau Arnar Daði Arnarsson og Hanna Guðrún Stefánsdóttir halda áfram við stjórnvölinn og leiða liðið inn í komandi verkefni. Við fögnum því að halda áfram með öflugt teymi innan félagsins og hlökkum mikið til næsta tímabils," segir í tilkynningunni frá Stjörnunni. Stjarnan endaði í 7.sæti Olís-deildarinnar og vann umspilið um laust sæti í Olís-deildinni eftir að hafa slegið út FH í undanúrslitum og Gróttu í úrslitaeinvíginu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.