

Vangaveltur eru hafnar um framtíð Árna Stefáns Guðjónssonar sem þjálfara kvennaliðs FH í Grill66-deildinni eftir að nýr meirihluti í bæjarstjórn Hafnarfjarðar var kynntur í gær. Nýi meirihlutinn samanstendur af Samfylkingunni, Sjálfstæðisflokknum og Viðreisn og verður Árni Stefán einn af bæjarfulltrúum meirihlutans á komandi kjörtímabili. Í kjölfar þess hafa sprottið upp umræður um hvort aukin pólitísk ábyrgð hans geti haft áhrif á áframhaldandi starf hans hjá FH. Málið var meðal annars rætt í nýjasta þætti Handkatsins þar sem velt var upp mögulegum breytingum á þjálfarateymi félagsins. ,,Ég talaði við góðan mann sem kom í klippingu til mín í dag og þetta er hörku vinna þegar þú ert í meiri hluta í bæjarstjórn. Þetta eru fundir seinni partinn tvisvar sinnum í viku sem geta dregist lengur. Það gæti alveg farið svo að við horfum á eftir einum af okkar efnilegustu þjálfurum en hann fær kannski að þjálfa yngri landslið í staðin," sagði Stymmi klippari meðal annars. Í þættinum var rætt um þann möguleika að Sigurjón Friðbjörn Björnsson, sem var aðstoðarþjálfari FH á síðustu leiktíð, taki við sem aðalþjálfari liðsins ef Árni Stefán ákveður að stíga til hliðar. Einnig var nefnt að Árni gæti áfram komið að starfinu í minna hlutverki og starfað við hlið Sigurjóns. ,,Það er spurning hvort Árni Stefán og Sigurjón Friðbjörn svissi, það er í tísku í dag," bætti Kristinn Björgúlfsson við. Árni Stefán hefur verið áberandi í uppbyggingu FH-liðsins undanfarin ár og notið góðs orðspors fyrir starf sitt með yngri leikmönnum og þróun liðsins. Því myndu breytingar á þjálfarastólnum teljast nokkuð stórt mál innan félagsins. Svipuð staða hefur einnig komið upp í Reykjavík þar sem Bjarni Fritzson, þjálfari karlaliðs ÍR, hefur tekið sæti í borgarstjórn. Þar hefur sömuleiðis verið rætt hvort borgarfulltrúastarfið geti þýtt að hann þurfi að láta af þjálfun liðsins eða minnka við sig. Rætt var um málið í nýjasta þætti Handkastsins.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.