Óvænt staða komin upp í úrslitaeinvíginu í Sviss
JOHAN NILSSON / TT News Agency via AFP

Það er heldur betur komin upp óvænt staða í úrslitaeinvíginu um svissneska meistaratitilinn þar sem Kadetten Schaffhausen eru lentir 0-2 undir í einvíginu gegn HC Kriens-Luzern eftir tap í gærkvöldi.

Kadetten Schaffhausen hafa orðið meistarar í Sviss síðustu fjögur tímabil en eru nú komnir með bakið upp við vegg. Óðinn Þór Ríkharðsson skoraði átta mörk í leiknum í gær þar af þrjú úr vítaköstum en staðan var jöfn í hálfleik 20-20 í miklum markaleik. Jafnræði var með á liðunum allan fyrri hálfleikinn og aldrei munaði meira en einu marki á liðunum.

Í seinni hálfleik náðu heimamenn í HC Kriens-Luzern góðum kafla í stöðunni 23-23 og breyttu stöðunni í 28-24. Óðinn Þór og félagar náðu aldrei að minnka það forskot niður og náðu heimamenn mest sex marka forskoti.

Að lokum endaði HC Kriens-Luzern á að vinna leikinn með fimm mörkum 41-36.

Næsti leikur í einvíginu fer fram á heimavelli Kadetten í Schaffhausen á laugardag. HC Kriens-Luzern getur tryggt sér svissneska meistaratitilinn með sigri þar.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top