Vonsvikin með HSÍ eftir að hafa orðið fyrir fordómum – HSÍ sýnir ekkert fordæmi
Egill Bjarni Friðjónsson

Íslands, deildar og bikarmeistarinn Hafdís Renötudóttir leikmaður Vals og íslenska landsliðsins , segist afar ósátt við hvernig tekið var á máli sem kom upp í úrslitaeinvígi Vals og ÍBV á dögunum. Þar varð hún fyrir fordómafullum söngvum sem beindust að kynhneigð hennar.

Þrátt fyrir að hafa fagnað bæði Íslands-, bikar- og deildarmeistaratitli með Val segir Hafdís að atvikið hafi haft mikil áhrif á sig andlega og sett dökkan skugga á tímabilið. Hafdís ræddi um málið í viðtali við Vísi.

Fordómarnir komu fram í söng stuðningsmanna þar sem vísað var með niðrandi hætti til samkynhneigðar hennar. Þar söng stuðningsmaður ÍBV að: Hafdís fílar skæri.

Hafdís segir úrslitaeinvígið hafa brotið sig

„Þetta dæmi var hreint út sagt ömurlegt,“ sagði Hafdís í viðtali við íþróttadeild Sýnar. „Það verður að segjast alveg eins og er. Þetta var ótrúlega krefjandi. Ég persónulega þurfti að grafa mjög djúpt bara til þess að halda áfram að sýna styrk, fyrir aðra og að vera fyrirmynd fyrir sama fólk.“

Hún segir að upplifunin hafi haft áhrif á einbeitinguna og tilganginn með þátttöku sinni í íþróttinni.

„Maður missti svolítið sjónar á því af hverju maður er í þessu. Að mæta var mikilvægt. Mér fannst það mikilvægara heldur en að mótmæla á annan hátt. Mér fannst mikilvægara að sýna það að vera fyrirmynd. Sýna það í verki frekar en með einhverjum orðum til dæmis. Sem betur fer skilaði það sér og við stöndum uppi sem Íslandsmeistarar.“

HSÍ lítur málið í Eyjum grafalvarlegum augum

Þrátt fyrir að Sólveig Jónsdóttir framkvæmdastjóri HSÍ hafi sagt í viðtali í kjölfar málsins að HSÍ líti málið grafalvarlegum og sagðist ætla fylgja málinu fast eftir þá var útkoman sú að ÍBV var sektað að upphæð 150 þúsund krónur, já ég endurtek. Hundrað og fimmtíu þúsund krónur. Í tilkynningu frá ÍBV um málið var því haldið fram að stuðningsmaðurinn hafi verið settur í tímabundið bann.

Að hennar mati sendir niðurstaðan röng skilaboð og refsiramminn sé alltof vægur miðað við alvarleika málsins. Hún segist vera gríðarlega vonsvikin út í niðurstöðu HSÍ.

,,Mér finnst þetta sýna ekkert fordæmi. Það versta í þessu öllu saman er svo að mér finnst hafa verið settur verðstimpill á Íslandsmeistaratitilinn eða titil yfir höfuð. Þessar upplýsingar segja manni það. Þú getur brotið leikmann nógu mikið, eða nógu marga leikmenn, þannig að þeir spili ekki sinn leik og þá ertu búinn að vinna titilinn. Sem betur fer gerðist það ekki í þessu einvígi og við unnum.“

Hún telur að harðari viðurlög hefðu þurft til að koma í veg fyrir sambærileg atvik í framtíðinni.

„Það hefði þurft að koma miklu hærri refsing til þess að sýna fordæmi vegna þess að nú er búið að gefa það út í kosmósið að þetta sé í lagi vegna þess að 150 þúsund krónur er upphæð sem ég get borgað hundrað sinnum. Það er ekki neitt. Það hefði þurft að vera ein góð refsing svo svona komi aldrei aftur fyrir.“

Hafdís segir enn eftir að ræða málið frekar við forsvarsmenn HSÍ áður en hún tjáir sig um stöðu sína með íslenska kvennalandsliðinu. Hafdís sem hefur verið lykilmaður í íslenska landsliðinu undanfarin ár segir málið óneitanlega snúið hvað varðar samband sitt við HSÍ.

„Þetta voru mikil vonbrigði. Það var tvennt í stöðunni. Ég á enn þá eftir að ræða þetta við HSÍ, fá frekari skýringar, en þetta er hræðilegt. Þessi niðurstaða. Við þurfum aðeins að setjast niður saman HSÍ og ræða málin áður en ég segi eitthvað hér.“

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top