Fyrirliðinn framlengir á Selfossi
Sigurður Ástgeirsson

Perla Ruth Albertsdóttir hefur skrifað undir nýjan þriggja ára samning við Selfoss og er því samningsbundin félaginu til 2029. Þetta tilkynnti félagið á samfélagsmiðlum sínum nú rétt í þessu.

Perla kom lítið við sögu með Selfossi í Olís-deild kvenna á síðasta tímabili en hún átti barn fyrir áramót. Selfoss endaði í neðsta sæti Olís-deildarinnar og leikur því í Grill66-deildinni á næstu leiktíð.

,,Perla er, eins og allir Selfyssingar vita ein besta handknattleikskona landsins. Hún var hægt og rólega að koma til baka eftir barnsburð á síðasta tímabili og verður því mikil styrking fyrir stelpurnar að fá Perlu á fullri ferð eftir sumarið," segir í tilkynningunni frá Selfossi.

Perla hefur allan sinn feril leikið á Selfossi að undanskildum tíma sínum hjá Fram.

,,Það er mjög mikilvægt fyrir okkur Selfyssinga að Perla sé áfram hjá okkur því hún er mikil fyrirmynd fyrir yngri iðkendur sem og liðsfélaga með faglegri nálgun sinni gagnvart íþróttinni."

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top