
Bjarki Már Elísson var ekki í leikmannahóp ONE Veszprém í fyrsta leik úrslitaeinvígisins í Ungverjalandi þar sem tvö efstu lið deildarinnar, ONE Vespzrém og Pick Szeged mætast. ONE Veszprém höfðu betur í kvöld á heimavelli með tveimur mörkum 38-36 þar sem heimamenn voru 19-17 yfir í hálfleik. Frakkinn, Hugo Descat átti fullkominn leik í liði Veszprém með 14 mörk úr 14 skotum. Luka Cindric kom næstur með sjö mörk og Yanis Lenne skoraði fimm. Janus Daði Smárason skoraði þrjú mörk úr fimm skotum fyrir Pick Szeged sem eru með bakið upp við vegg fyrir næsta leik liðanna en vinna þarf tvo leiki til að tryggja sér meistaratitilinn. Imanol Garciandia var markahæstur í liði Pick Szeged með níu mörk og Marin Jelinic, Sebastian Frimmel og Bence Banhidi skoruðu allir fimm mörk. Markvarslan var ekki upp á marga fiska hjá báðum liðum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.