Tjörvi leikur sinn síðasta heimaleik fyrir Oppenweiler/Backnang
Oppenweiler

Línumaðurinn, Tjörvi Týr Gíslason leikur sinn síðasta heimaleik fyrir félag sitt, Oppenweiler/Backnang í þýsku B-deildinni í dag þegar liðið tekur á móti Ludwigshafen í síðasta heimaleik félagsins á þessu tímabili.

Tjörvi Týr yfirgefur félagið eftir eins árs dvöl en hann gekk í raðir nýliðanna frá Bergischer síðasta sumar. Með Bergischer fór Tjörvi Týr upp í þýsku Bundesliguna en það var önnur örlög sem biðu hans í ár þar sem liðið hefur ekki enn unnið leik í þýsku B-deildinni og situr á botni deildarinnar með tvö stig.

Tjörvi Týr er einn af sex leikmönnum félagsins sem yfirgefa félagið í sumar.

Tjörvi Týr hefur verið orðaður við heimkomu í sumar og gæti gengið í raðir uppeldisfélags síns, Val.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top