MT Melsungen vann fyrsta titilinn í sögu félagsins eftir dramatískan úrslitaleik
Swen Pförtner / dpa Picture-Alliance via AFP)

MT Melsungen vann fyrsta stóra titilinn í sögu félagsins þegar liðið lagði THW Kiel að velli, 24-23, í úrslitaleik Evrópudeildarinnar rétt í þessu. Leikurinn var gríðarlega jafn og spennandi frá upphafi til enda og réðst ekki fyrr en á lokasekúndunum.

Melsungen byrjaði leikinn af mikilli áræðni og beitti 7 á 6 strax í fyrstu sókninni. Fyrsta mark leiksins kom frá Arnari Frey Arnarssyni, en varnarleikur og markvarsla voru í aðalhlutverki framan af. Kiel komst í 6-4 eftir ellefu mínútur, en Melsungen svaraði og jafnaði í 7-7 um miðjan fyrri hálfleik.

Liðin skiptust á að hafa forystuna það sem eftir lifði hálfleiksins. Nebojsa Simic átti þá nokkrar stórkostlegar vörslur fyrir Melsungen og Aron Mensing kom liðinu yfir, 12-11, þegar fjórar mínútur voru til leikhlés. Rétt fyrir hálfleik skoraði David Mandic og tryggði Melsungen 13-12 forystu í leikhléi.

Melsungen hóf síðari hálfleikinn af krafti og komst í 15-13 og síðar 16-14. Kiel var þó aldrei langt undan og jafnaði í 17-17 þegar Harald Reinkind skoraði á 47. mínútu. Þrátt fyrir góð færi tókst hvorugu liðinu að ná afgerandi forskoti á lokakaflanum.

Spennan náði hámarki á síðustu mínútunum. Florian Drosten kom Melsungen yfir 23-22 af vítalínunni tveimur mínútum fyrir leikslok. Simic varði síðan vítakast frá Lukas Zerbe og gaf sínum mönnum tækifæri til að klára leikinn. Kiel náði þó að jafna í 23-23 þegar aðeins mínúta var eftir.

Roberto Garcia Parrondo tók þá leikhlé og lagði upp lokasókn Melsungen. Dainis Kristopans vann aukakast og fann David Mandic úti á hægri kanti, sem skoraði sigurmarkið, 24-23, þegar 14 sekúndur voru eftir. Kiel fékk eitt síðasta færi til að jafna, en Simic varði skot Domagoj Duvnjak og lokatilraun Eric Johansson úr aukakasti fór ekki í gegnum varnarvegg Melsungen.

Arnar Freyr Arnarsson skoraði 2 mörk fyrir Melsungen í dag en Reynir Þór Stefánsson sem leikur einning með Melsungen kom ekkert við sögu í leiknum í dag.

Þar með var sögulegur sigur í höfn og MT Melsungen gat fagnað fyrsta titli félagsins frá stofnun.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top