
Línumaðurinn, Thelma Melsteð Björgvinsdóttir leikur ekki með Haukum í Olís-deild kvenna á næstu leiktíð. Þetta staðfesti hún í samtali við Handkastið. Thelma sem er fædd árið 2004 og er uppalin í Haukum og hefur leikið allan sinn feril þar er á leið í nám erlendis. ,,Ég er að flytja til Danmerkur og er á leiðinni í meistaranám í verkfræði. Ég ætla mér að spila úti en á eftir að staðfesta með hvaða liði það verður. Ég ætla mér að ná langt í boltanum og vonandi verða þetta fyrstu skrefin til þess," sagði Thelma í samtali við Handkastið. Thelma lék á sínum yngri árum með yngri landsliðum Íslands en hún skoraði 34 mörk fyrir Hauka á síðustu leiktíð en liðið tapaði í undanúrslitum Íslandsmótsins gegn ÍBV og tapaði í bikarúrslitum gegn Val.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.