Haukar fá leikmann frá Noregi
Haukar

Þóra Björg Stefánsdóttir hefur gengið í raðir Hauka og hefur skrifað undir tveggja ára samning við félagið.

Þóra kemur til liðs við Hauka frá norska liðinu IL Rival þar sem hún hefur leikið undanfarin tvö ár en hún er uppalin í ÍBV og lék með þeim áður en hún hélt til Noregs.

,,Þóra er örvhent og getur leyst af bæði hægri skyttu og hornamanns stöðuna og kemur því til með að nýtast Hauka liðinu vel í báðum þeim leikstöðum," segir í tilkynningunni frá Haukum.

Þóra er 22 ára en hún lék á sínum tíma með yngri landsliðum Íslands.

,,Það er ánægjulegt að Þóra ákveði að semja við Hauka og mun hún hjálpa liðinu í þeim markmiðum að keppast um alla þá titla sem í borði eru. Það verður því gaman að fylgjast með Þóru á parketinu á Ásvöllum eftir sumarið og hlökkum við til að sjá hana í Haukatreyjunni."

Þóra Björg segist vera ánægð að vera komin í Hauka.

,,Það er mjög ánægjulegt að vera orðinn leikmaður Hauka. Mér líst vel á þjálfarann og umgjörðina og er mjög spennt fyrir komandi tímabili með stelpunum."

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top