Þýsku meistararnir í SC Magdeburg munu á miðvikudagskvöld taka við meistaratitlinum á heimavelli eftir leik liðsins gegn gegn VfL Gummersbach. Þá verða einnig leikmenn liðsins sem kveðja félagið í sumar kvaddir. Óvissa ríkir um framtíð landsliðsmannsins, Elvars Arnar Jónssonar sem hefur verið orðaður við Rhein Neckar Löwen síðustu daga. Það er þó ekki gert ráð fyrir því að Elvar Örn verði kvaddur formlega á miðvikudagskvöldið þar sem vistaskipti Elvars eru ekki enn orðin formleg. Elvar Örn er talinn ósáttur við hlutverk sitt hjá félaginu og er sagður vilja yfirgefa félagið og ganga í raðir Rhein-Neckar Löwen. Markvörðurinn Sergey Hernandez yfirgefur Magdeburg eftir þrjú ár og gengur til liðs við FC Barcelona og verður þar liðsfélagi Viktors Gísla Hallgrímssonar. Annar markvörður liðsins, Nikola Portner mun einnig yfirgefa félagið þrátt fyrir að hafa verið samningsbundinn til ársins 2027 en hann er á leið til Pick Szeged. Tim Hornke lýkur ferlinum eftir tímabilið og leggur skóna á hilluna 35 ára að aldri. Hann hefur verið samtals ellefu ár hjá Magdeburg og átt stóran þátt í uppbyggingu liðsins. Við stöðu hans tekur Daninn Oskar Vind sem kemur frá GOG. Á sama tíma heldur Svisslendingurinn Manuel Zehnder til GOG. Zehnder hefur átt erfitt uppdráttar eftir alvarleg hnémeiðsli og hefur átt í erfiðleikum með að vinna sér fast sæti í liðinu. Fleiri breytingar eru fram undan hjá Magdeburg. Línumaðurinn Tim Zechel flytur sig yfir til TSV Hannover-Burgdorf og þá fer Norðmaðurinn Sebastian Barthold til Mors-Thy í Danmörku. Barthold var fenginn til félagsins sem skammtímalausn eftir meiðsli hjá Matthias Musche.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.