Við smullum gríðarlega vel saman
Stjarnan handbolti

Norska handboltakonan Trude Hakonsen gekk í raðir Stjörnunnar frá KA/Þór í byrjun apríl. Hún lék með KA/Þór í eitt tímabil og skoraði 83 mörk í 21 leik á síðastliðnu tímabili. Þessi norski hornamaður sem líka getur leyst af skyttustöðuna kom upprunalega til KA/Þór frá Junkeren í Noregi.

Við heyrðum í Trude og fengum hana aðeins til að tjá sig um tímann norðan heiða og það sem framundan er hjá henni í Garðabænum með Stjörnunni.

"Þegar ég fyrst heimsótti Akureyri var það einnig mitt fyrsta skipti á Íslandi. 5 tíma keyrslan frá Keflavík til Akureyrar gaf mér tækifæri á að sjá þónokkuð mikið af landinu og fá góð fyrstu áhrif af landinu sem það svo sannarlega var"

"Strax frá byrjun var fólkið í klúbbnum mjög almennilegt, vinalegt og hjálplegt. Þau sýndu mér bæinn, hjálpuðu mér að aðlagast og gerðu búferlaflutninga í nýtt land mun auðveldlegra. Ég var heppin að ég deildi íbúð með Susanne, sem var líka norskur leikmaður í félaginu. Það gerði allt miklu auðveldara og við smullum gríðarlega vel saman"

"Við áttum nokkuð gott tímabil miðað við að vera nýliðar í deildinni. Við söfnuðum mikilvægum stigum í gegnum tímabilið og tryggðum sætið okkar í deildinni tiltölulega snemma. Það var líka flott að ná að komast í Final Four. Allt þetta gerðum við þrátt fyrir að berjast við þónokkur meiðsli í gegnum tímabilið. Deildarfyrirkomulagið var mun öðruvísi en ég hef áður vanist. 8 lið og þreföld umferð var áhugaverð upplifun og eitthvað sem ég bjóst ekki við"

"Núna er ég flutt til Reykjavíkur og gengin í raðir Stjörnunnar og verð þar næstu 2 árin hið minnsta. Þetta er ungt lið með mörgum hæfileikaríkum leikmönnum og ég lít björtum augum á þetta tækifæri og allar áskoranir sem framundan eru. Æfingar eru nú þegar hafnar og ég hlakka til þegar mótið byrjar í haust"

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top