Allir nýliðarnir hefja leik á útivelli í Olís-deild kvenna
Eyjólfur Garðarsson

HSÍ hefur gefið út leikjaniðurröðunina fyrir bæði Olís-deild karla og Olís-deild kvenna fyrir næstu leiktíð.

Breyting verður á keppnisfyrirkomulaginu í Olís-deild kvenna en fjölgað var í deildinni um tvö lið og leika því 10 lið í Olís-deild kvenna á næstu leiktíð. HK sem vann Grill66-deildina á síðustu leiktíð unnu sér þátttökurétt í Olís-deildinni og þá fengu Grótta og Víkingur þátttökurétt í deildinni eftir fjölgunina.

Allir þrír nýliðarnir hefja leik í Olís-deildinni á næstu leiktíð á útivelli. HK fer á Ásvelli og mætir þar Haukum, Víkingur hefur leik á þreföldum meisturum Vals á meðan Grótta fer í Úlfarsárdalinn og mætir þar Fram.

ÍR tekur á móti Stjörnunni og ÍBV fær KA/Þór í heimsókn.

Í 2.umferðinni verður síðan stórleikur á Hlíðarenda þegar Valur fær ÍBV í heimsókn en þetta eru einmitt þau lið sem mættust í úrslitaeinvíginu í vor. Þá verður nýliðaslagur í Virkinu þegar Víkingur fær Gróttu í heimsókn.

Fyrstu tvær umferðirnar í Olís-deild kvenna má sjá hér að neðan en alla leikjaniðurröðunina má nálgast á eldri vef HSÍ.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top