Þóra Björg Stefánsdóttir gekk í raðir Hauka á dögunum og skrifaði undir tveggja ára samning við félagið. Þóra kemur til liðs við Hauka frá norska liðinu IL Rival þar sem hún hefur leikið undanfarin tvö ár en hún er uppalin í ÍBV og lék með þeim áður en hún hélt til Noregs. ,,Þóra er örvhent og getur leyst af bæði hægri skyttu og hornamanns stöðuna og kemur því til með að nýtast Hauka liðinu vel í báðum þeim leikstöðum," sagði í tilkynningunni frá Haukum. Rætt var um þessi félagaskipti í nýjasta hlaðvarpsþætti Handkastsins þar sem Ágúst Þór Jóhannsson var gestur en hann þekkir til Þóru þar sem hann þjálfaði hann í yngri landsliðum Íslands á sínum tíma. ,,Þetta er mjög góð signing hjá Haukum. Þetta var vel gert hjá Haukum að fá hana. Hún er ekkert ósvipaður leikmaður og Hildur Þorgeirsdóttir var á sínum tíma. Hún kann leikinn upp á 10 og er eldklár. Hún getur skotið af gólfi og er með góða sendingargetu," sagði Ágúst og hélt áfram: ,,Haukar eru líka búnar að fá Bertu Rut hægra megin, þannig ég held að Haukar geti verið mjög öflugar á næsta ári.” Haukar hafa síðan einnig fengið þær Hrafnhildi Önnu Þorleifsdóttur markvörð frá Stjörnunni og línumanninn, Guðmundu Auði Guðjónsdóttur einnig frá Stjörnunni.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.