Kemur í ljós hvað tekur við hjá mér
Savehof

Landsliðskonan, Elín Klara Þorkelsdóttir átti gott sem fullkomið tímabil á sínu fyrsta ári í atvinnumennsku með félagsliði sínu Savehof í Svíþjóð.

Elín Klara gekk í raðir félagsins frá uppeldisfélagi sínu Haukum fyrir tímabilið og stóð uppi sem sænskur meistari eftir sigur á Skara í úrslitaeinvíginu þar sem Elín Klara fór á kostum líkt og allt tímabilið en hún var valin besti leikmaður tímabilsins í Svíþjóð.

Leið betur eftir áramót

,,Heilt yfir er ég mjög sátt með fyrsta tímabilið mitt hér úti og er glöð með að hafa tekið þetta skref. Við vorum með frekar nýtt lið í byrjun tímabils og mér fannst stígandinn í liðinu aukast mikið þegar á leið," sagði Elín Klara í samtali við Handkastið á dögunum þegar hún var beðin um að fara gera upp tímabilið sitt í Svíþjóð.

,,Eftir áramót fór mér að líða betur enda farin að venjast þessu umhverfi, fannst ég tengjast samherjum betur og meira vera að spila minn leik. Það var frábært að vinna deildina sannfærandi. Mæta svo tilbúnar og spila frábærlega í úrslitakeppninni þar sem að við unnum öll einvígin 3-0. Ég verð svo að hrósa frábæru liðsfélögum mínum sem að spiluðu ótrúlega vel og hjálpuðu mér mikið."

Savehof stóð uppi sem sænskur meistari og deildarmeistari en tapaði í 8-liða úrslitum bikarsins eftir tap gegn Skara. Hún segir að úrslitaeinvígið gegn Skara hafi verið krefjandi og skemmtilegt.

,,Þetta voru sömu lið og spiluðu til úrslita í fyrra, þannig að það var meiri spenna fyrir vikið. Við mættum með mikið sjálfstraust og öryggi inn í leikina. Við byrjuðum vel og unnum fyrstu tvo leikina sannfærandi. Svo var þriðji og síðasti leikurinn meira spennandi þar sem við unnum í mögnuðum tvíframlengdum leik. Karakterinn sem liðið sýndi í þessum lokaleik og í rauninni allri úrslitakeppninni var alveg einstakur," sagði Elín Klara og þar með endurheimti Savehof meistaratitilinn eftir að Skara hafði haft betur í einvíginu á síðustu leiktíð.

Skemmtilegt þegar talað er vel um mann

Handboltaspekingar í Svíþjóð hrósuðu Elínu Klöru í hástert í vetur og gengu sumir svo langt að segja að Elín Klara væri einfaldlega of góð fyrir deildina.

,,Það er virkilega skemmtilegt þegar talað er vel um mann. Ég tel að þetta hafi verið góður staður að byrja á. Ég hef lært svakalega mikið og bætt mig. Við vorum með frekar nýtt lið i byrjun timabils og það var mjög gaman að vera partur af þessari uppbyggingu hjá liðinu."

Elín Klara var beðin um að lýsa muninum á sænsku og íslensku deildinni.

,,Sænska deildin er mun sterkari og hraðari. Það er keyrð mikil seinni bylgja og hröð miðja. Deildin er jafnari, það eru mörg sterk lið, meiri breidd og allir geta einhvern vegin unnið alla. Leikmenn eru líkamlega sterkari og þéttari varnir."

,,Það mætti alveg segja að það hafi komið mér á óvart hversu vel mér gekk á tímabilinu. Ég vissi auðvitað ekki nákvæmlega hvernig allt myndi ganga. Aðlagast nýju umhverfi og landi í bland við nýtt lið, nýja deild og svo framvegis. Ég mætti út í góðu standi, hafði verið að spila vel á Íslandi undanfarin ár. Í Svíþjóð var ég mætt að spila með og á móti sterkari leikmönnum. Þá þarf maður sjálfur að stíga upp og sýna hvað í sér býr á nýju sviði sem gekk svo bara mjög vel."

,,Ég er mjög spennt fyrir næsta timabili. Mér líður vel hérna og við viljum halda áfram byggja ofan á það sem við höfum verið að gera. Ég tel að þetta hafi verið frábært skref. Markmiðið er að halda áfram að taka skref fram á við. Ég er enn með samning við Savehof svo kemur í ljós hvað tekur við hjá mér," sagði Elín Klara sem á eitt ár eftir af samningi sínum við sænska félagið.

Íslenskur kvennahandbolti er á mikilli uppleið

Töluvert fleiri íslenskar stelpur eru nú á samningi við erlend félagslið heldur áður. Elín Klara var spurð út í þá staðreynd og hver hún telur ástæðuna vera fyrir þeirri breytingu.

,,Íslenskur kvennahandbolti er á mikilli uppleið. Landsliðið okkar að fara á fjórða stórmótið í röð. Það segir margt. Það er frábært að leikmenn sem eru að standa sig vel heima leita út í atvinnumennsku. Þannig ná þeir að bæta enn meira við sinn leik, takast á við fleiri áskoranir og elta draumana sína," sagði Elín Klara Þorkelsdóttir að lokum í samtali við Handkastið.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top