Yfirgefur Hauka og heldur til Danmerkur
Sævar Jónasson

Eftir þrjú tímabil með Haukum er ljóst að Inga Dís Jóhannsdóttir leikur ekki með liðinu í Olís-deild kvenna á næstu leiktíð. Hún heldur í sumar til Kaupmannahafnar í nám og stefnir á að leika handbolta í Danmörku á næstu leiktíð.

Inga Dís gekk í raðir Hauka sumarið 2023 frá uppeldisfélagi sínu HK en hún á fjölda leikja að baki með yngri landsliðum Íslands og stækkaði hlutverk hennar í Haukaliðinu í vetur eftir að Rut Arnfjörð Jónsdóttir datt út vegna óléttu.

Inga Dís skoraði 71 mark fyrir Hauka í Olís-deildinni og úrslitakeppninni í vetur en liðið tapaði í undanúrslitaeinvíginu gegn ÍBV í oddaleik 3-2. Hún var fimmti markahæsti leikmaður liðsins á tímabilinu.

,,Eins og staðan er núna er planið að flytja til Kaupmannahafnar. Ég fór á dögunum á æfingar hjá Rødovre og leist mjög vel á aðstæður þar. Planið er því að spila með þeim á næsta tímabili, samhliða því að hefja meistaranám í iðnaðarverkfræði við DTU," sagði Inga Dís í samtali við Handkastið.

Rødovre endaði í 3.sæti dönsku 1.deildarinnar á síðustu leiktíð en tapaði 2-0 í umspili um laust sæti í dönsku úrvalsdeildinni gegn Ajax Kobenhavn.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top