Hafnarfjarðarmótið fer fram um miðjan ágúst og verður að þessu sinni í umsjón Hauka og leikið verður á heimavelli þeirra, Kuhene+Nagel höllinni að Ásvöllum. Mótið fer fram dagana 15. - 22.ágúst og verður því með breyttu sniði en mótið fer fram yfir lengra tímabil nú en áður en yfirleitt hefur mótið verið leikið á styttri tíma. Í ár verða auk Hafnarfjarðarliðanna Hauka og FH, Afturelding og HK á mótinu. Öll lið leika þrjá leiki á mótinu en mótinu lýkur laugardaginn 22.ágúst þar sem Afturelding og HK mætast og loks Haukar og FH. Leikjaniðurröðun í Hafnarfjarðarmótinu: Laugardagur, 15.ágúst:
11:00 FH - HK
13:00 Haukar - Afturelding
Þriðjudagur, 18.ágúst:
18:00 HK - Haukar
20:00 FH - Afturelding
Laugardagur, 22.ágúst:
11:00 Afturelding - HK
13:00 Haukar - FH

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.