Danski landsliðsmaðurinn, Mathias Gidsel sem leikur með Füchse Berlin varð markahæsti leikmaður þýsku úrvalsdeildarinnar með 317 mörk og var í sérflokki á markalistanum. Það sem gerir afrek Gidsel enn athyglisverðara er að ekkert marka hans kom af vítalínunni. Hann skoraði öll 317 mörkin í opnum leik og var 62 mörkum á undan næsta manni á listanum, Kai Häfner hjá TVB Stuttgart. Tveir Íslendingar voru meðal markahæstu leikmanna deildarinnar á tímabilinu. Ómar Ingi Magnússon hjá SC Magdeburg hafnaði í þriðja sæti með 226 mörk, þar af 86 úr vítaköstum, en Haukur Þrastarson hjá Rhein-Neckar Löwen varð fimmti með 212 mörk. Haukur var að klára sitt fyrsta tímabil í þýsku úrvalsdeildinni. Rhein-Neckar Löwen átti tvo leikmenn á meðal tíu markahæstu manna deildarinnar, en auk Hauks var línumaðurinn Jannik Kohlbacher sjöundi á listanum með 207 mörk. Þá deildu Nicolaj Jörgensen hjá HSV Hamburg og Emil Jakobsen hjá SG Flensburg-Handewitt áttunda sætinu með 205 mörk hvor. Tíu markahæstu leikmenn þýsku Bundesligunnar 2025/26

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.