Samkvæmt heimildum Handkastsins gæti Hulda Dagsdóttir verið að yfirgefa Fram eftir eins árs dvöl hjá félaginu en hún gekk í raðir Fram fyrir síðasta tímabil eftir að hafa leikið með Aftureldingu í Grill66-deildinni. Samkvæmt heimildum Handkastsins hefur Hulda ekki verið að æfa með Fram liðinu á undirbúningstímabilinu en hún hefur óskað eftir því að fá að yfirgefa félagið. Hulda sem er uppalin í Fram og lék upp yngri flokka með félaginu og steig sín fyrstu skref með meistaraflokki félagsins. Hún kom aftur heim í Fram í fyrra eftir að hafa leikið síðast með félaginu tímabilið 2017/2018. Í millitíðinni lék hún meðal annars í Danmörku og Noregi en hún var síðasti markahæsti leikmaður Aftureldingar í Grill66-deildinni tímabilið 2024/2025. Heimildir Handkastsins herma að Hulda vilji yfirgefa Fram og er vilji hennar að ganga í raðir Íslandsmeistara Vals en unnusti hennar, Bjarni Mark Antonsson leikur með karlaliði Vals í knattspyrnu ef hún nær að losa sig undan samningi við Fram. Samkvæmt heimildum Handkastins hefur Valur sýnt leikmanninum áhuga og eru viðræður í gangi á milli Fram og Vals. Valur er hinsvegar ekki tilbúið að borga þá upphæð sem Fram hefur sett á leikmanninn og því er málið í algjörri biðstöðu. Hulda var markahæsti leikmaður Fram á tímabilinu en hún skoraði 118 mörk fyrir Fram bæði í Olís-deildinni og úrslitakeppninni en Fram tapaði 3-0 gegn Val í undanúrslitum úrslitakeppninnar. Þá fór liðið í Final 4 í bikarnum og tapaði í undanúrslitum gegn Haukum.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.