Línumaðurinn Ásdís Guðmundsdóttir mun ekki leika með Fram á komandi leiktíð í Olís-deild kvenna. Þetta staðfesti Gísli Freyr Valdórsson, formaður handknattleiksdeildar Fram, í samtali við Handkastið. Ásdís gekk til liðs við Fram fyrir síðustu leiktíð og var hluti af liðinu á nýliðnu tímabili. Á dögunum var hanni veitt háttvísiverðlaun HDSÍ á lokahófi HSÍ fyrir framúrskarandi framkomu og drengilega hegðun innan vallar. Ásdís var þriðji markahæsti leikmaður Fram á tímabilinu með 100 mörk þar af 18 mörk af vítalínunni. Samkvæmt Gísla Frey nýtti Ásdís sér uppsagnarákvæði í samningi sínum við félagið sem var í gildi til ársins 2027. Í kjölfarið hafi forráðamenn Fram átt í viðræðum við leikmanninn um áframhaldandi samstarf, en þær viðræður skiluðu ekki niðurstöðu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.