U16 ára landsliðið leikur við Færeyjar um helgina
HSF

U16 ára kvennalandslið Íslands leikur um helgina tvo vináttulandsleiki gegn færeyska U16 ára landsliðinu hér á landi.

Fara leikirnir fram á laugardag og sunnudag og verða leiknir í Virkinu í Safamýri. Leikurinn á laugardaginn hefst klukkan 15:00 og á sunnudaginn hefst leikurinn klukkan 13:30. Eru leikirnir hluti af undirbúningi liðsins fyrir Opna Evrópumótið sem fram fer í Gautaborg í byrjun júlí.

Landsliðið er skipað eftirtöldum leikmönnum sem valdir voru af þeim Einari Jónssyni og Rakel Dögg Bragadóttur landsliðsþjálfurum en hópurinn var valinn í mars síðastliðinn.  

Anja Gyða Vilhelmsen        Valur
Bjartey Hanna Gísladóttir    Fram
Elma Kolbrún Bjarnadóttir    FH
Emilía Guðný Magnúsdóttir    HK
Freydís Ragna Kristjánsdóttir    HK
Helga Jenný Vigfúsdóttir    HK
Hrefna Dís Valgeirsdóttir    Haukar
Katrín Ásta Jóhannsdóttir    ÍR
Kristín Einarsdóttir        HK
Matthildur Helga Ólafsdóttir    Valur
Sara Sigurvinsdóttir        Valur
Sara Sveinsdóttir        Valur
Soffia Helen Sölvadóttir    Grótta
Tanja Harðardóttir        ÍBV
Tinna Dröfn Hauksdóttir        HK
Þórhildur Káradóttir        Valur

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top