Viktor Gísli Hallgrímsson markvörður íslenska landsliðsins og Barcelona verður í eldlínunni um helgina í úrslitahelgi Meistaradeildarinnar, Final 4 sem fram fer í Köln. Barcelona mætir þar Álaborg í undanúrslitum á laugardaginn en í hinum undanúrslitaleiknum mætast þýsku liðin, Füchse Berlin og Magdeburg. Handkastið heyrði í Viktori Gísla sem var í fullum undirbúningi með sínu liði fyrir helgina. ,,Það er mikill spenningur fyrir helginni. Undirbúningur hjá liðinu er í fullum gangi og við eigum tvær æfingar eftir og síðan hefst þetta. Álaborg er mjög gott lið og með marga góða leikmenn og með mikla breidd. Þetta verður hörkuleikur." ,,Þeirra helsti styrkleiki er þeirra sóknarleikur og þeir eru með marga góða sóknarmenn en það vantar kannski aðeins upp á einhver varnartröll hjá þeim. Ef við náum að skora nóg af mörkum og að Niklas Landin verði ekki í banastuði þá tel ég okkur eiga mjög góðan séns. Við höfum verið að spila mjög vel undanfarið, við spilum vel í úrslitaleiknum í bikarnum um síðustu helgi og mér fannst liðið smella vel í þeim leik," sagði Viktor Gísli en Barcelona varð um helgina spænskur bikarmeistari. Hann segir að mikill undirbúningur hafi verið í aðdraganda leiksins gegn Álaborg. ,,Okkur líður mjög vel og við erum vel undirbúnir. Við höfum eytt miklum tíma í að undirbúa okkur fyrir þennan leik og skoða þeirra leik." Viktor Gísli er að fara leika á Final 4 helginni í fyrsta skipti á ferlinum og segir þetta var langþráður draumur. ,,Það er draumur að rætast að fá að spila í Final 4 en það mun sennilega ekki kikka inn fyrr en maður mætir á svæðið. Ég er mjög spenntur að spila í Lanxess Arena fyrir framan fjölskyldu og vini og vonandi nóg af Íslendingum og keppast um medalíu. Ég er mjög spenntur og tilbúinn í þetta." Leikur Álaborgar og Barcelona hefst klukkan 16:00 á laugardaginn en leikur Magdeburg og Füchse Berlin hefst klukkan 13:00 sama dag.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.