Benedikt Gunnar Óskarsson gekk á dögunum í raðir danska úrvalsdeildarfélagið TTH Holstebro og mun leika með liðinu á næstu leiktíð. Arnór Atlason, aðstoðarlandsliðsþjálfari Íslands er þjálfari félagsins og verður Benedikt Gunnar annar íslenski leikmaðurinn í herbúðum liðsins en fyrir er Jóhannes Berg Andrason sem gekk í raðir félagsins síðasta sumar frá FH. Arnór Atlason sagði í viðtali við heimasíðu danska félagsins að nokkrar ástæður liggi að baki ákvörðun félagsins um að fá Benedikt til liðs við sig. „Vegna meiðsla Thomas Damgaard þurfum við fleiri möguleika í mikilvæga stöðu og með það leikjaálag sem við búumst við á næsta tímabili er mikilvægt að hafa nægilega breiðan leikmannahóp. Þrátt fyrir að Benni sé aðeins 23 ára kemur hann með mikla reynslu. Hann hefur orðið meistari bæði á Íslandi og í Noregi, leikið í Evrópukeppnum og öðlast dýrmæta reynslu í Meistaradeildinni með Kolstad. Þetta er leikmaður sem hefur mikla reynslu á háu stigi." Arnór segir Benedikt búa yfir fjölmörgum kostum sem muni nýtast liðinu vel. „Benni er spennandi leikstjórnandi sem spilar af miklum hraða og hefur afar gott handboltavit. Hann tekur góðar ákvarðanir, gerir fá mistök og er mjög fær í að skapa færi fyrir samherja sína. Hann er kannski ekki stærsti leikmaðurinn líkamlega séð, en hann bætir það upp með hraða sínum, yfirsýn og hæfileikanum til að lesa leikinn. Þetta eru eiginleikar sem falla einstaklega vel að okkar leikstíl," sagði Arnór við heimasíðu TTH Holstebro þegar Benni var kynntur til sögu hjá félaginu.

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.
Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.