Unglingalandsliðs markvörður í HK
HK Handbolti

Markvörðurinn, Elísabet Millý Elíasardóttir hefur verið tilkynnt sem nýr leikmaður nýliða HK í Olís-deild kvenna en hún hefur skrifað undir tveggja ára samning við félagið. Hún kemur til liðsins frá Val, þar sem hún hefur leikið undanfarin tvö ár.

Millý er uppalin í Stjörnunni og hefur leikið með öllum yngri landsliðum Íslands á síðustu árum. Hún er einnig á leið til Kína í sumar með U20 ára landsliðinu.

,,Það er frábært fyrir okkur í HK að Millý hafi ákveðið að skrifa undir og sjái hag sinn í því að halda áfram sinni framþróun hjá okkur næstu árin. Millý er góður markmaður, auk þess sem hún er gríðarlega metnaðarfull. Hún mun passa vel inn í hópinn hjá okkur, sem stefnir hátt á næstu árum. Koma hennar er mikill fengur fyrir liðið," sagði Dagur Snær Steingrímsson nýráðinn þjálfari HK við undirritun samningsins.

,,Það verður gríðarlega spennandi að sjá Millý í HK-treyjunni í Olísdeildinni í haust," segir ennfremur í tilkynningunni frá HK.

Millý er fyrsti leikmaðurinn sem HK sækir eftir að liðið tryggði sér sæti í Olís-deildinni eftir sigur í Grill66-deildinni.

Leikið verður í 10 liða Olís-deild kvenna á næstu leiktíð og það verður fróðlegt að fylgjast með ungu og spennandi liði HK í deild þeirra bestu á nýjan leik undir stjórn Dags Snæs.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top