Selfoss byrjar á tveimur útileikjum í Grill66-deild kvenna
Sigurður Ástgeirsson

HSÍ hefur gefið út leikjaniðurröðunina fyrir Grill66 - deild kvenna fyrir næstu leiktíð en átta lið taka þátt í Grill66-deildinni. Fjölgun varð í Olís-deild kvenna á næstu leiktíð en tvö ný lið taka þátt í Grill66-deildinni á næstu leiktíð, HK 2 og Grótta 2.

Selfoss sem féll úr Olís-deild kvenna á síðustu leiktíð fer í Lambhagahöllina og mætir Fram 2 í 1.umferðinni en Fjölnir, FH, Selfoss og Afturelding mæta öll venslaliðum í 1.umferðinni.

Í 2.umferðinni fer fram stórleikur í Myntkaup höllinni í Mosfellsbæ þegar Afturelding fær FH í heimsókn en bæði lið ætla sér stóra hluti í Grill66-deildinni á næstu leiktíð.

Líkt og á síðustu leiktíð verður leikin þreföld umferð eða alls 21 umferð í Grill66-deildinni. Hér að neðan má sjá fyrstu tvær umferðirnar í deildinni og þá er hægt að sjá alla leikjaniðurröðunina hér.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top