Barcelona í úrslitin eftir framlengdan leik
Ruben De La Rosa / NurPhoto via AFP

Viktor Gísli Hallgrímsson og félagar hans í Barcelona spila til úrslita í Meistaradeildinni á morgun eftir sigur á Álaborg 37-32 eftir framlengdan leik.

Barca höfðu undirtökin framan af leik í fyrri hálfleik og komust mest í 5 marka forskot eftir 20 mínútna leik. Álaborg gáfust hinsvegar ekki upp og það var Thomas Arnoldssen sem skoraði jöfnunarmarkið þegar um 90 sekúndur voru eftir af leiknum.

Sterk vörn Börsunga hélt síðan áfram í framlengingunni og voru þeir fljótlega komnir þremur mörkum yfir og litu þá ekki um öxl.

Það er því ljóst að Viktor Gísli Hallgrímsson mun spila til úrslita í Meistaradeildinni á morgun þegar Barca mætir Füchse Berlin.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top