Sigur og tap gegn Færeyjum um helgina
Sævar Jónasson

U-16 ára landslið kvenna lék tvo vináttulandsleiki gegn Færeyjum um helgina en leikirnir fóru báðir fram í Virkinu, heimavelli Víkings.

Fyrri leikurinn fór fram á laugardaginn þar sem þær færeysku höfðu betur með sex marka mun 27-33 en Sara Sveinsdóttir var markahæst í liði Íslands í þeim leik með níu mörk og Kristín Einarsdóttir kom næst með sex mörk.

Íslensku stelpurnar höfðu hinsvegar betur í leiknum á sunnudeginum. Íslensku stelpurnar unnu eins marks sigur 27-26 þar sem Kristín Einarsdóttir var markahæst með níu mörk. Sara Sveinsdóttir og Tinna Dröfn Hauksdóttir skoruðu sex mörk hvor í leiknum.

Þjálfarar liðsins eru Einar Jónsson og Rakel Dögg Bragadóttir en stelpurnar eru á leið til Gautaborgar í byrjun júlí og leika þar á Opna Evrópumótinu.

Markaskorarar Íslands í leiknum á laugardag:

Sara Sveinsdóttir 9

Kristín Einarsdóttir 6

Anja Gyða Vilhelmsdóttir 3

Helga Jenný Vigfúsdóttir 3

Sara Sigurvinsdóttir 2

Emilía Guðný Magnúsdóttir 1

Hrefna Dís Valgeirsdóttir 1

Tinna Dröfn Hauksdóttir 1

Bjartey Hanna Gísladóttir 1

Markaskorarar Íslands í leiknum á sunnudag:

Kristín Einarsdóttir 9

Tinna Dröfn Hauksdóttir 6

Sara Sveinsdóttir 6

Sara Sigurvinsdóttir 2

Emilía Guðný Magnúsdóttir 2

Helga Jenný Vigfúsdóttir 2

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top