Nýtt fyrirkomulag í Olís-deild kvenna á næstu leiktíð
Egill Bjarni Friðjónsson

Eftir að ákveðið var að fjölga liðum í Olís-deild kvenna úr átta liðum í tíu á 69. ársþingi HSÍ sem haldið var í maí var það sett í hendurnar á mótanefnd og afreksnefnd HSÍ að ákveða leikjafyrirkomulagið í Olís-deildinni.

Olís-deild kvenna hefur verið leikin með átta félögum síðustu tíu ár en tímabilið þar áður var spilað í einni 14 liða deild. Nú er ljóst að 10 liða leika í Olís-deild kvenna og átta lið í Grill66-deildinni á næstu leiktíð.

Leiknar hafa verið 21 umferð í átta lið Olís-deild kvenna undanfarin ár og í kjölfarið farið í sex liða úrslitakeppni þar sem tvö efstu lið deildarinnar hafa sitið hjá í fyrstu umferð.

Nú er hinsvegar ljóst að leikjafyrirkomulagið í Olís-deild kvenna verður með allt öðru sniði en undanfarin ár.

Svona verður leikafyrirkomulagið í Olís-deild kvenna:

Öll tíu lið deildarinnar leika innbyrðis gegn hvort öðru, heima og að heiman. Þegar þeim 18 leikjum er lokið verður deildinni skipt upp í tvo fimm liða riðla, efri og neðri.

Fimm efstu lið deildarinnar mætast í einfaldri umferð og neðri fimm liðin mætast í einfaldri umferð. Liðin í neðri riðlinum geta ekki farið upp fyrir liðin í efri riðlinum eftir 22 umferðir þrátt fyrir að vera með fleiri stig.

Svona verður úrslitakeppnin í Olís-deild kvenna:

Eftir 22 leiki í deildarkeppninni fellur neðsta liðið beint í Grill66-deildina, 9.sætið fer í umspil um laust sæti í Olís-deild kvenna á næstu leiktíð með þremur liðum úr Grill66-deildinni. Átta efstu lið deildarinnar fara í 8-liða úrslitakeppni þar sem liðunum verður átta verður skipt upp í tvo fjögurra liða riðla þar sem efstu fjögur liðin byrja með fleiri stig heldur en hin fjögur.

Í 8-liða úrslitakeppninni verður leikin tvöföld umferð eða alls sex leikir.

Tvö efstu lið hvors riðils vinna sér síðan sæti í undanúrslitum þar sem leikið verður upp í tvö og loks er komið að úrslitaeinvíginu þar sem einvígið er upp í þrjá sigra.

Það mætti því segja að verið sé að umturna leikjafyrirkomulaginu í Olís-deild kvenna fyrir næstu leiktíð.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top