Hildur Sóley áfram í Grafarvoginum
Fjölnir

Hildur Sóley Káradóttir hefur framlengt samningi sínum við Fjölni. Þetta tilkynnti félagið á heimasíðu sinni í dag en Hildur Sóley gerir samning við félagið til næstu tveggja ára.

Hildur gekk til liðs við Fjölni frá Haukum fyrir síðasta tímabil og lék með liðinu í Grill66-deildinni þar sem Fjölnir endaði í 5.sæti deildarinnar með 14 stig, jöfn mörg stig og Valur 2 sem var í 6.sætinu.

,,Hún er hraður og kraftmikill leikmaður, hörkuskytta og hefur verið mikilvægur hlekkur í liðinu frá komu sinni," segir í tilkynningunni frá Fjölni.

Meistaraflokksráð kvenna fagnar því að Hildur hafi framlengt samning sinn: „Strax frá komu sinni setti Hildur mark sitt á leik liðsins. Það er mikil ánægja að Hildur hafi ákveðið að halda áfram með liðinu næstu tvö árin,“ sagði Magnús Þór Arnarsson fyrir hönd meistaraflokksráðs kvenna.

Þá segist Hildur hlakka til næsta veturs: „Ég er spennt fyrir komandi tímabili og að halda áfram að vaxa sem leikmaður og vera hluti af þessari frábæru liðsheild.“

Hildur Sóley skoraði 38 mörk í 20 leikjum fyrir Fjölni á síðustu leiktíð en hún var fimmti markahæsti leikmaður liðsins.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top