Ein sú efnilegasta fylgir móður sinni í Úlfarsárdalinn
Haukar handbolti

Einn efnilegasti leikmaður landsins, Ebba Guðríður Ægisdóttir hefur gengið í raðir Fram frá uppeldisfélagi sínu Haukum. Ebba Guðríður hefur gert tveggja ára samning við Fram.

Þar með eltir Ebba móður sína, Díönu Guðjónsdóttur í Úlfarsárdalinn en Díana er orðinn aðstoðarþjálfari kvennaliðs Fram ásamt því að stýra Fram 2 í Grill66-deildinni og 3.flokk félagsins. Þar er Ebba gjaldgeng.

Ebba sem er fædd árið 2009 hefur verið í yngri landsliðum Íslands en hún var í leikmannahópi Hauka í öllum leikjum liðsins í Olís-deildinni á síðustu leiktíð og skoraði þrjú mörk.

Ebba Guðríður sem er leikstjórnandi var samningsbundinn Haukum en samkvæmt heimildum Handkastsins fékk hún að rifta samningi sínum við félagið þar sem hún hafði áhuga að leita annað eftir að móðir hennar yfirgaf félagið, þá var faðir hennar, Ægir Sigurgeirsson einnig þjálfari hjá Haukum en hann hefur einnig látið af störfum hjá félaginu samkvæmt heimildum Handkastsins.

Ebba er annar leikmaðurinn á tveimur árum sem er fædd árið 2009 og yfirgefur uppeldisfélag sitt og gengur í raðir Fram en í fyrra gekk unglingalandsliðsmarkvörðurinn, Arna Sif Jónsdóttir í raðir Fram frá Val.

Ebba er þriðji leikmaðurinn sem gengur í raðir Fram en áður hafði félagið samið við Hönnu Guðrúnu Hauksdóttur frá Stjörnunni og Lenu Margréti Valdimarsdóttur frá Skara í Svíþjóð.

Nýjustu fréttir

HAFA SAMBAND

Handkastið.net

Handkastið er hlaðvarpsþáttur og fréttamiðill um íslenskan og erlendan handbolta.

Ritstjórar eru Arnar Daði Arnarsson og Styrmir Sigurðsson.


handkastid@handkastid.net

Scroll to Top